Fréttir
Öllum tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar hafnað
Vegagerðin bauð út áætlunarflug til Hafnar í Hornafirði í vetur. Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu en um er að ræða sérleyfissamning fyrir árin 2024-2027. Tilboð voru opnuð þann 30. apríl 2024 síðastliðinn. Þrjú tilboð bárust en þau voru öll töluvert yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að hafna öllum tilboðum.
Hvalfjarðargöng lokuð 15. maí frá klukkan 21-23 vegna brunaræfingar
Göngin um Hvalfjörð verða lokuð miðvikudaginn 15. maí frá klukkan 21-23 vegna umfangsmikillar brunaæfingar á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Hjáleið verður um Hvalfjörð (47) meðan á æfingunni stendur.
Mjóafjarðarheiði opnuð
Vegurinn um Mjóafjarðarheiði hefur verið opnaður og er fær vel útbúnum bílum. Búið er að stinga í gegnum skaflana sem margir hverjir eru allt að fjögurra metra háir. Mikill snjór er enn á heiðinni og krapi og klaki á veginum. Áfram verður unnið að því að breikka leiðina og gera útskot svo bílar geti mæst með góðu móti.